
Sumarið er ekki sexy. Kringlan brann, helvíti þarf hönnun að vera dýr á einfaldri brú yfir ylströnd og glænýr kynsjúkdómur sem þú mátt svo sannarlega missa af. En ekki missa af umræðunni um rándýra samloku og auðvitað þurfa æðstu embættismenn landsins að fá launahækkun eins og aðrir. Þetta og nýjustu trendin í rúminu í sumar. Góða skemmtun!
Jun 19, 2024
1 hr 20 min

Nafnið á þættinum er auðvitað ekkert annað en smellibeita. Við fórum yfir hvort framboð Kötu hafi verið klúður. Hversu oft eðlilegt að pör rífist oft á ári. Bullandi geðrof í veðurspám veðurfræðinga, varðhundur karlmennskunnar og útlendingarmálin fengu pláss. Þetta og auðvitað sambandsráðgjöf auk ódauðlegrar umræðu um kynlíf á sínum stað í lokin. Góða skemmtun!
Jun 11, 2024
1 hr 30 min

Það var sér íslenskt rant í fyrri hálfleik og al íslenskt. Við komumst að því hver verður næsti forseti lýðveldisins án þess að vera sammála. Pabbi gamli að klæmast í dóttur sinni á OF, vond ráð sem við höfum fengið og trendið í kynlífinu þínu í sumar já og hvað kostar heybaggarúlla? Góða skemmtun!
May 30, 2024
1 hr 20 min

Fastir liðir eins og venjulega. Stutt um forsetakostningar, Onlyfans svkísa sem varar eiginkonur fótboltamanna við framhjáhaldi þeirra og það er ástæða fyrir því þú átt að vera með beltið spennt í flugvél. Við fórum svo í lokin í gegnum það hvernig andlitið á þér gefur upp kynlanganir þínar. Þetta og hvort það sé safe að drekka 30lítra af vatni á dag. Góða skemmtun!
May 22, 2024
1 hr 14 min

Var Eurovision ferð Heru þess virði? Er hægt að rúnka sér með opin augun, hvaða kynlífs týpa ert þú, lögfræðingar sem mæta í prófsýningar og eru til ljót kornabörn? Smá um forsetakostningar og frekar slakir pabbabrandarar, fer alveg eftir því hvern þú spyrð. Þetta og margt fleira í lengsta 70min þætti sögunar. Góða skemmtun!
May 15, 2024
1 hr 37 min

Stóra Kveiks málið sem varð að Kastljósi. Saga frá Atlantic City hvernig kona vann 1,2 milljónir dollara, grímulaus drulludreyfing Moggans á forsetaframbjóðendur og á konan að vera heima og kallinn að hugsa um björg í bú? Hvað er til ráðs ef kallinn er ekki í stuði? Þetta og svo margt fleira sem kemmst ekki fyrir í þessum dálki. Góða skemmtun!
May 8, 2024
1 hr 26 min

Við tókum fyrir þússt allt sem þú heyrðir en hlustaðir ekki á í vikunni. Baldur, Kata, Halla og Jón. Viltu vita hvenær þú deyrð og er heimstyrjöld á leiðinni. Þetta og drauma stefnumót Simma & Huga í þætti vikunnar. Góða skemmtun og gleðilegt sumar ☀️
Apr 24, 2024
1 hr 23 min

Nóg um að vera hjá í þætti vikunnar. Við fórum yfir þetta óraunverulega mál Davíðs Wok On Viðarssonar og alnafna hans. Ótrúlegt mál. Fólk nennti að væla yfir kostnaði við árshátíð Landsvirkjunar sem sá sóma sinn í að halda hátíðina úti á landi. Hlutir sem karlar vilja í fari kvenna og 7 trix í rúminu sem hún getur gert fyrir hann. Góða skemmtun!
Apr 17, 2024
1 hr 14 min

Fórum yfir fréttir vikunnar á mannamáli. Er Kata Jak að yfirgefa sökkvandi skip? ráðherra stoppdans virðist vera mjög skemmtilegur leikur. Bankinn þarf ekki að hækka vexti þótt Seðlabankinn geri það, hvað heillar konur við karlmenn og það sem konur vilja að karla viti að þær vilja í rúminu. Þetta og vissulega margt fleira. Góða skemmtun!
Apr 10, 2024
1 hr 19 min

Við fórum í gegnum þennan farsa sem forsetaframboðið er. Tókum fyrir konu sem var dæmd fyrir að dreyfa myndum sem hún stal úr símanum hjá manninum sínum. Puffy kom fyrir í þættinum, merki þess að þú sért háður klámi og hvar kynnast pör í dag. Þetta og eðlilega margt fleira í þætti vikunnar. Góða skemmtun !
Apr 3, 2024
1 hr 25 min
Load more
