
Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa --------------------------- Í þessum þætti fæ ég íslenska kuldakonunginn Andra Iceland til mín í annað skiptið. Í þetta sinn víkkum við umræðuna úr kuldanum yfir í hita, öndun, hugarfar, streitu og margt fleira. Við ræðum einnig um áhugaverða ráðstefnu sem Andri stendur fyrir og verður haldin í Hörpu 18. febrúar næstkomandi.
Feb 10, 2023
52 min

Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa Gestur þáttarins er Apríl Harpa Smáradóttir. Apríl er yoga kennari, meðeigandi fyrirtækisins cocobutts.is og framkvæmdastjóri Sólir yogastöðvar á Granda. Í þættinum ræðum við um 9 ára ferðalag Aprílar um Asíu, barneignir og uppeldi á Balí, fræðin og heimspekina á bakvið yoga, mikilvægi þess að hlusta á eigið innsæi og margt fleira.
Jan 30, 2023
47 min

Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa Í þessum þætti fer ég yfir þær svokölluðu "biohacking" græjur sem ég nota reglulega til að bæta eða viðhalda heilsunni og bæta árangur og vellíðan. Ég hef prófað mikið af allskonar mismunandi græjum en það er stór hluti af þeim sem hafa fljótlega endað ofan í skúffu. En eftirfarandi listi af 9 biohacking vörum er eitthvað sem ég sé mikið notagildi í og nota að staðaldri eða mjög reglulega til að viðhalda heilsunni, líða betur og ná betri árangri.
Jan 26, 2023
26 min

Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa Jens K. Guðmundsson er læknir með sérmenntun í háls, nef og eyrnalækningum. Hann hefur yfir 15 ára reynslu í læknageiranum og vann um tíma í (HNE) skurðlækningum og á bráðadeild. Jens hefur á síðastliðnum árum fært sig meira yfir í functional medicine og sótti nám í þeim fræðum hjá Kresser Institute í bandaríkjunum. Hann lærði einnig heildræn heilsufræði hjá CHEK institute í bretlandi og hefur nýtt það samhliða functional medicine nálgun á sína skjólstæðinga. Í dag starfar hann hjá Nordic Clinic - nordicclinic.is
Nov 24, 2022
53 min

Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa Í þessum þætti fer ég yfir 9 atriði sem gætu verið ástæða þess að þú ert ekki að ná markmiðum þínum þegar kemur að fitutapi. Sumir vilja meina að þeir hafi látið á allt reyna en geti ekki losnað við aukakílóin. Oftar en ekki eru þó ákveðin atriði sem eru í blindblett eða "blindspot" hjá okkur sem koma í veg fyrir að við náum þeim árangri sem við teljum okkur eiga skilið. Þessi þáttur er unninn í samstarfi við: www.lopidraumur.is - 10% afsláttur í netverslun með kóða "360heilsa"
Nov 7, 2022
12 min

Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa Gestir þáttarins eru hjónin Ingvar hákon Ólafsson, heila- og taugaskurðlæknir og Laufey steindórs, gjörgæsluhjúkrunafræðingur og jóga- og hugleiðslukennari. Eftir að Laufey lenti í andlegu og líkamlegu hruni árið 2013 fóru þau hjón að kynna sér betur fræði og vísindi núvitundar og hugleiðslu og áhrif þess á heilann, streitu, vellíðan og heilsu. Í þættinum ræðum við þessi mál og fleira. Sjá www.kyrrdarjoga.is fyrir 3 fríar hugleiðslur
Nov 1, 2022
44 min

Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa Gestur þessa þáttar er Erla Gerður sveinsdóttir heimilislæknir og lýðheilsufræðingur. Erla sérhæfir sig í offitumeðferð og hefur eytt síðastliðnum áratug í að aðstoða fólk í offitu og fræða fólk um þennan sjúkdóm sem fer vaxandi hér á landi og víðar í heiminum. Erla leggur áherslu á heildræna nálgun í meðferð sinni og segir ótalmarga þætti spila hlutverk þegar kemur að offitu, hlutir eins og erfðir, hormón, svefn, líkamsklukkan, þarmaflóran, uppeldisáhrif, venjur og fleira.
Oct 25, 2022
42 min

Guðbrandur er sálfræðingur og sérfræðingur í klínískri sálfræði. Guðbrandur lauk embættisprófi í sálarfræði frá Árósarháskóla árið 1999 og seinna framhaldsnámi í hugrænni atferlismeðferð og ársnámi í taugavísindum mannlegra tengsla, auk fjölda námskeiða hér heima og erlendis meðal annars í handleiðslufræðum. Í Danmörku starfaði Guðbrandur á meðferðarstofnun fyrir traumatíserað flóttafólk og seinna á fjölskyldumeðferðarstofnun. Síðustu ár hefur Guðbrandur lagt aðaláherslu á vinnu með sálræn áföll, sorgarúrvinnslu, afleiðingar skilnaðar og ýmsan tilvistarlegan vanda. Vorið 2019 kom út önnur bók Guðbrandar "Skömmin - úr vanmætti í sjálfsöryggi" um skammartilfinningar, birtingarmyndir þeirra og meðferðarúrræði. Sjá nánar HÉR Fyrsta bók Guðbrandar “Í nándinni – innlifun og umhyggja” kom út árið 2013. Sjá nánar HÉR Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa
Sep 21, 2022
43 min

Gyða Dröfn Tryggvadóttir starfar sem meðferðararaðili í áfalla-og uppeldisfræðum (PIT Therapy) sem daglega er kallað meðvirkni, kennari og fyrirlesari á sviði meðvirkni og núvitundar. Kristín Sigurðardóttir er slysa- og bráðalæknir. Hún kennir við læknadeild Háskóla Íslands og er formaður Fræðslustofnunar Læknafélags Íslands. Til að kynnast betur því sem Gyða og Kristín eru að gera: https://www.facebook.com/aheildinalitid https://www.facebook.com/heillheimur Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu: www.patreon.com/360heilsa
Sep 12, 2022
43 min

Indíana Nanna Jóhannsdóttir er einka- og hóptímaþjálfari og stofnandi GoMove Iceland. Indíana hefur mikinn áhuga á hreyfingu, næringu og matargerð og er hún dugleg að deila allskyns uppskriftum, æfingum og fleira áhugaverðu á instagram síðunni sinni @indianajohanns. Í þættinum ræddum við um allskyns hluti tengda hennar lífsstíl ásamt mataræðispælingum, einföldum matartipsum, næringu fyrir börnin, ketilbjölluþjálfun og fleira skemmtilegt. www.gomove.is Skráðu þig í áskrift á hlaðvarpinu til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu: www.patreon.com/360heilsa
Sep 2, 2022
51 min
Load more
