180⁰ Reglan
180⁰ Reglan
Freyja Kristinsdóttir
Hlaðvarp um kvikmyndagerð . . 180⁰ Reglan er spjallþáttur í umsjón Freyju Kristinsdóttur. Í þættinum ræðir Freyja við fólk sem starfar á ólíkum vettvangi í kvikmyndageiranum á Íslandi, fær innsýn í feril viðmælenda og þeirra sýn á bransann hér á landi. Viðmælendur eru úr öllum áttum, en reglan er sú að hafa jafnt kynjahlutfall viðmælenda í þættinum.
#23 Herdís Stefánsdóttir - kvikmyndatónskáld
Herdís Stefánsdóttir er kvikmyndatónskáld með annan fótinn í LA og hinn á Íslandi. Ferill hennar sem kvikmyndatónskáld er tiltölulega nýbyrjaður en er samt kominn á fullt skrið. Hún hefur samið tónlist við fjölda stuttmynda, tvær bandarískar kvikmyndir í fullri lengd, eina HBO þáttaröð og næst á dagskrá er íslenska spennuþáttaröðin Verbúðin.  Upphafsstef: Herdís Stefánsdóttir - "Grand Central" úr kvikmyndinni The Sun is also a star Lokastef: Herdís Stefánsdóttir - úr kvikmyndinni South Mountain https://www.herdisstefansdottir.com/
Jul 11, 2020
35 min
#22 Atli og Elías - leikari/framleiðandi og handritshöfundur
Atli Óskar Fjalarson og Elías Helgi Kofoed Hansen eru bestu vinir og starfa báðir í kvikmyndagerð. Þeir hófu ferilinn sem ungir leikarar í kvikmyndinni Órói en færðu sig svo yfir í aðra þætti kvikmyndagerðar, Atli sem framleiðandi og Elías sem handritshöfundur. Þeir lærðu kvikmyndagerð í LA en búa og starfa núna á Íslandi og eru einnig með hlaðvarpsþáttinn "Atli og Elías" sem fjallar um þeirra eigin upplifun af kvikmyndabransanum á Íslandi.
Jul 3, 2020
1 hr 1 min
#21  Hálfdán Theodórsson - aðstoðarleikstjóri
Hálfdán Theodórsson hefur unnið sem aðstoðarleikstjóri í næstum 20 ár og meðal kvikmynda sem hann hefur unnið að má nefna Vonarstræti, Hrútar, Hjartasteinn og Kona fer í stríð.  Tónlist: "Horizon" eftir Hákon Júlíusson https://www.hakonjuliusson.com/ https://soundcloud.com/hakonjuliusson
Jun 20, 2020
51 min
#20 Christof Wehmeier - Kynningarstjóri KMÍ
Hvað eiga kvikmyndirnar Men in Black, Kona fer í stríð og Mamma Gógó sameiginlegt? Jú - Christof Wehmeier hefur komið að kynningu og markaðssetningu þeirra ásamt fjölda annarra kvikmynda. Christof hefur komið víða við, meðal annars unnið fyrir Stjörnubíó og Sambíóin en síðastliðin 13 ár hefur hann verið kynningarstjóri hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands. Við fórum yfir allt þetta í okkar spjalli og komum auðvitað líka inn á stöðu kvikmyndahátíða á tímum veirufaraldurs. Kvikmyndamiðstöð Íslands: kvikmyndamidstod.is Tónlist: "Walk with Me" - Jana María Guðmundsdóttir Flora: https://open.spotify.com/album/2N6qNsTKiTPt7LhU5zAmpn?si=Q8pGpOq5TFGzvG2Kce8Feg
May 29, 2020
28 min
#19 Ottó Geir Borg - handritshöfundur
"Maður er að reyna að skrifa ekki næstu Covid-19 mynd, maður heldur sig frá því...reynir frekar að einbeita sér að einhverju skemmtilegra sem kannski hressir fólk" sagði Ottó Geir Borg, aðspurður hvaða áhrif faraldurinn hafi á störf handritshöfundar. Ottó Geir hefur unnið við handritsskrif, ráðgjöf og kennslu í um 20 ár. Það tók 7 ár að koma fyrsta handritinu á hvíta tjaldið, en myndin sló í gegn og Ottó hefur ekki stoppað síðan. Tónlist: Magni Freyr Þórisson ([email protected]) https://magniice.bandcamp.com/
Apr 8, 2020
1 hr 8 min
#18 Kvikmyndagerð í skugga Covid-19
Covid-19 hefur haft áhrif á alla heimsbyggðina, og síðastliðinn mánuð höfum við Íslendingar fundið fyrir því svo um munar. Kvikmyndageirinn hefur ekki farið varhluta af þeim áhrifum, og þá sérstaklega þeir sem eru sjálfstæðir verktakar. Ég vildi ræða þetta ástand nánar og sló á þráðinn til formanna WIFT og FK, en það eru þær Anna Sæunn Ólafsdóttir og Sigríður Rósa Bjarnadóttir. WIFT á Íslandi (Women in Film and Television) FK (Félag Kvikmyndagerðarmanna) Tónlist: "Entidy" eftir Keosz
Apr 3, 2020
48 min
#17 Birta Rán Björgvinsdóttir - tökumaður
Birta Rán Björgvinsdóttir skaut á dögunum tónlistarmyndband sem hefur fengið 2 milljónir áhorfa á einungis 3 vikum. Birta hefur skotið fjöldan allan af tónlistarmyndböndum, en auk þess hefur hún séð um kvikmyndatökuna í ýmsum stuttmyndum og auglýsingum. Svo má ekki gleyma ljósmyndunum, en Birta sérhæfir sig í afar listrænum sjálfsmyndum. www.birtaran.com instagram.com/birtarnb www.youtube.com/user/birtarnb www.andvarinn.com   Tónlist: Think about things eftir Daða Frey Pétursson, söngur - Fríða María Ásbergsdóttir
Mar 11, 2020
49 min
#16 Ásgrímur Sverrisson - leikstjóri
Ásgrímur Sverrisson hefur gert kvikmyndir og fjallað um kvikmyndir í hvers kyns miðlum um áratugaskeið. Ásgrímur er ritstjóri klapptre.is og hefur alla tíð haft mikinn áhuga á uppbyggingu kvikmyndabransans hér á landi og hvað megi bæta í þeim efnum. Hann er einn stofnenda Edduverðlaunanna og Bíó Paradís og svo er hann líklega einn helsti sérfræðingur okkar í sögu íslenskrar kvikmyndagerðar.  Tónlist: "A destination" eftir Arngerði Árnadóttur [email protected]
Mar 5, 2020
51 min
#15 Katrín Björgvinsdóttir - leikstjóri
Baldvin Z hoppandi upp og niður af gleði og Katrín Björgvins grátandi á gólfinu fyrir framan heilt framleiðsluteymi seríunnar "Réttur", ónýtur bílafloti á setti og leikarar hræddir um líf sitt. Allt þetta og meira til í þessu stórskemmtilega viðtali við Katrínu Björgvinsdóttur sem útskrifaðist nýlega sem leikstjóri frá Den danske filmskole. Tónlist: "Hero" eftir Hauk Karlsson [email protected]
Jan 23, 2020
1 hr 8 min
#14 Ninna Pálmadóttir - leikstjóri og handritshöfundur
Ninna Pálmadóttir er nýflutt til Íslands eftir mastersnám í kvikmyndagerð í New York. Ninna sagði mér frá náminu, hvernig henni tókst að pitcha raddlaus, fundi með Spike Lee og hvernig áhuginn á kvikmyndagerð kviknaði á unglingsárunum norður á Akureyri.  http://www.ninnapalma.com/ Tónlist: "Soft" eftir Ingvar Örn Arngeirsson. https://soundcloud.com/ingvar_orn https://soundcloud.com/heimskautarefur
Jan 14, 2020
1 hr 8 min
Load more